Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Fyrir skemmstu tók hópur tónlistarmanna á Akureyri sig saman og setti upp tónleikadagskrá tileinkaða söngvaranum Óðni Valdimarssyni. Þar er sagt frá lífshlaupi Óðins í tali og tónum, ferill hann rakinn og flutt öll hans þekktustu lög. Hér er á ferðinni afskaplega vönduð og skemmtileg dagskrá með frábæru tónlistarfólki.

Óðinn Valdimarsson var fæddur á Akureyri 1937 og hann varð einn allra vinsælasti söngvari á Íslandi á árunum 1958 til 1964. Mörg laga Óðins eru fyrir löngu komin í allar söngbækur og enn heyrast lögin hans í útvarpinu eins og Einsi kaldi, Útlaginn, Magga, Ég er kominn heim og mörg fleiri.

Hljómsveitina skipa: Einar Bragi Bragason, Björn Þórarinsson,Valgarður Óli Ómarsson, Stefán Gunnarsson, Snorri Guðvarðsson, Þorleifur Jóhannsson, Hermann Arason, Helena Eyjólfsdóttir, Friðjón Jóhannsson, Óskar Pétursson. Rafn Sveinsson og Brynleifur Hallsson.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
26.08.12 - Sunnudagur 20:00 Lögin hans Óda - Hof (Akureyri) Miðasala Hofs 1.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class