- Þú ert hér »
Tristano Project

Tristano-project er samvinnuverkefni Hauks Gröndal og Ólafs Jónssonar en efnisskráin er samansett af tónsmíðum eftir bandaríska jazzpíanistann Lennie Tristano sem ásamt lærisveinum sínum skapaði sérstakan stíl innan New York jazzins á 4., 5. og 6. áratug síðustu aldar. Ásamt Hauki og Ólafi, sem leika á saxófóna, leika Agnar Magnússon á píanó, Þorgrímur Jónsson á bassa og Scott McLemore á trommur.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 26.08.12 - Sunnudagur | 16:00 | Tristano Project - Jazzhátíð Reykjavíkur 2012 | Iðnó | Jazzhátíð Reykjavíkur | 2.000 kr. |


