- Þú ert hér »
Edrúhátíð SÁÁ

Fjölskylduhátíð að Laugalandi í Holtum um Verslunarmannahelgina (sami afleggjari af þjóðvegi og leiðir að Galtalæk nema miklu styttra).
Fjölskylduhátíð, Kaffi, kökur og rokk & ról, barnadagskrá, andlegt prógram, 12-sporafundir, matarveislur, útivist, fræðsla, skemmtun og gleði — allt í einni bendu.
Hér að neðan er dagskrá helgarinnar en það kostar einungis 4.500 krónur inn á hátíðina og það er frítt fyrir yngri en 14 ára. Miðað við verð á tjaldstæðum (það er innifalið) þá gerist það varla ódýrara um verslunarmannahelgina. ...
Kaffi, kökur og Rokk & Ról
Fyrirbærið kaffi, kökur... er tónleikaröð sem hefur verið og verður áfram í tónleikasal SÁÁ í Von, Efstaleiti 7 í vetur, en sannkölluð uppskeruhátíð þessa fyrirbæris verður að Laugalandi í Holtum um þessa verslunarmannahelgi.
Föstudagur 20:00-24:00
Smári Tarfur
Eyþórssystur
Ylja
Legend - Krummi Björgvinsson
Mirra klárar svo kvöldið.
Laugardagur 21:00-24:00
Mannakorn (þarfnast vart kynningar)
Kyriyama Family
Prins Póló
Sundlaugapartý með Dj Natali og Terrordisco!
Sunnudagur 20:00-24:00
Örvar Kristjánsson með ball fyrir alla fjölskylduna
Urban Lumber
Contalgen Funeral
Tilbury NÝTT!!!
OG NEI... ÞETTA ER EKKI BÚIÐ ÞVÍ HÉR KEMUR RÚSÍNAN Í PYLSUENDANUM: FYRIR ANDANN (Ekki aðeins eru í boði 12 sporafundir og kynningar á 12 sporasamtökum á örfárra klukkutíma fresti heldur er hátíðin líka mjög andleg og við höfum komið upp sérstöku hugleiðsluherbergi að Laugalandi þar sem við verðum með fyrirlestra, kynningar og æfingar fyrir alla sem vilja prófa eitthvað nýtt.
Auk þess verður ódýr matur og fjöldinn allur af viðburðum í boði....
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 03.08.12 - Föstudagur | 20:00 | Edrúhátíð SÁÁ - 3. - 5. ágúst 2012 | Laugaland í Holtum | SÁÁ | 4.500 kr. |


