- Þú ert hér »
Friðrik Ómar

Friðrik Ómar útgáfutónleikar
Friðrik Ómar sendir frá sér sína fyrstu sólóplötu með einungis frumsömdu efni þann 1. nóvember næstkomandi. Af því tilefni verða útgáfutónleikar í Hamraborg Hofi laugadagskvöldið 3. nóvember kl. 21:00 þar sem Friðrik flytur efnið af plötunni ásamt hljómsveit í glæsilegri umgjörð.
Platan ber heitið Outside the ring en titillag plötunnar er þýðing Jóns Óttars Ragnarssonar á ljóði Steins Steinarr, Utan hringsins.
Hljómsveitina skipa: Stefán Örn Gunnlaugsson hljómborð, hljóðgervlar og raddir, Ingi Björn Ingason á bassa, Kristján Grétarsson á gítar, Benedikt Brynleifsson á trommur, Ingunn Hlín Friðriksdóttir raddir og Elísabet Ormslev raddir.
Hljóðmeistari: Haffi Tempó
Ljósameistari: Helgi Steinar
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 21.11.12 - Miðvikudagur | 20:00 | Friðrik Ómar - Útgáfutónleikar | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 3.900 kr. |


