Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

The Saints of Boogie Street er hljómsveit sem flytur lög eftir Leonard Cohen. Sveitin hefur verið starfandi undanfarin þrjú ár og haldið tónleika vítt og breitt um landið við góðan orðstír. Hljómsveitin gaf nýverið út geisladisk með lögum meistarans og fékk hann nafnið “Leonard Cohen Covered”  en þar er að finna 14 af helstu perlum Cohen í flutningi tveggja söngkvenna í nýjum fallegum útsetningum.

Hljómsveitin hefur hlotið mikið lof þeirra sem komið hafa á tónleika og diskurinn vakið athygli út fyrir landsteinana fyrir fallegan flutning. Hefur sala á disknum gengið frábærlega jafnt hérlendis sem erlendis. Hefur meistarinn sjálfur, Leonard Cohen, farið lofsamlegum orðum um skífuna og sendi hópnum þakklæti sitt og lýsti yfir dálæti á vel heppnuðum útsetningum.

Hljómsveitina skipa:

Esther Jökulsdóttir söngur
Soffía Karlsdóttir söngur
Kristinn Einarsson piano
Ingólfur Sigurðsson trommur
Ólafur Kristjánsson bassi
Pétur V. Pétursson gítar

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
03.11.12 - Laugardagur 21:00 The Saints of Boogie Street - Lög eftir Leonard Cohen Salurinn Salurinn í Kópavogi 3.300 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class