Skálmöld

Skálmöld hefur stimplað sig rækilega inn í íslenskt tónlistarlíf síðastu árin og fangaði fyrsta breiðskífa sveitarinnar, Baldur, hug og hjörtu Íslendinga svo um munaði.
Melódískt víkingarokk af þyngri gerðinni virtist eiga upp á pallborðið hjá ungum jafnt sem öldnum og síðan þá hafa Skálmaldarmenn verið duglegir við að fylgja frumburðinum eftir. Skálmöld hefur spilað á fjölmörgum tónleikum, bæði hér heima sem og erlendis, og áhangendahópurinn vaxið jafnt og þétt. Á vormánuðum 2012 réðust þér félagar síðan í upptökur á annarri plötu sinni. Verkið hefur hlotið nafnið Börn Loka, og er útgáfa áætluð nú snemmveturs.
Til að fagna velgengninni og plötuútgáfunni hafa Skálmeldingar ýmislegt á prjónunum og þar á meðal skal blásið til útgáfutónleika í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri annan dag febrúarmánaðar. Þar verður öllu til tjaldað, Börn Loka verður þar leikin í heild sinni og sagan sem platan geymir verður rakin í tónlist, máli og myndum. Svipaðir tónleikar voru haldnir í samhengi við fyrri plötuna, Baldur, og þótti takast einkar vel til enda þótt umhverfið gangi þvert á ímynd venjulegra þungarokkstónleika.
Hér gefst öllum tækifæri til að njóta tónleika í þægilegum sætum og meiri áhersla lögð á aðgengilegri upplifun en gengur og gerist á þungarokkstónleikum. Því ættu allir að geta haft gaman af.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 02.02.13 - Laugardagur | 20:00 | Skálmöld - Börn Loka | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 3.990 kr. |
| 02.02.13 - Laugardagur | 23:00 | Skálmöld - Börn Loka - Aukatónleikar | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 3.990 kr. |

