Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Gogoyoko kynnir:
Prince Rama á Faktorý 24. ágúst

Bandaríska grasrótar- sækadelíusveitin Prince Rama mun spila á Faktorý föstudaginn 24 ágúst næstkomandi.
Prince Rama er skipað systrunum Taraka og Nimai Larson sem voru aldar upp í Hare Krishna kommúnu í Florida og skólaðar í School of Museum of Visual Art í Boston, kann það að einhverju leyti að skýra þann eteríska sækadelíuseið sem systurnar hafa bruggað síðan. Þær hafa þó síðan komið sér fyrir í tónlistarlegu gróðrarstíunni í Brooklyn og alls sent frá sér 4 breiðskífur.  Sú síðasta, Trust Now, sem kom út í fyrra var gefin út af Paw Tracks útgáfunni sem er rekin af þeim Animal Collective félögum.

Það verður engin önnur en Kría Brekkan sem mætir með föruneyti og hitar upp samkomuna. Kristín Anna Valtýsdóttir var löngum álfur í skóginum múm en hvarf á vit annarra ævintýra um 2006 og fór að vinna að költ performans seríu Kríu Brekkan í Eplaborginni. Kristín Anna hefur spilað með hljómsveitunum Stórsveit Nix Noltes, Mice Parade og Animal Collective og gefið út tónlist á fyrrnefndu Paw Tracks útgáfu. Í vor túraði Kría Brekkan austurströnd Bandaríkjanna með Plastic Gods og Muck.

20 ára aldurstakmark.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
24.08.12 - Föstudagur 23:00 Prince Rama (USA) og Kría Brekkan - Tónleikar Faktory Gogoyoko 1.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class