Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Minningartónleikarnir verða glæsilegir í alla staði. Einstakur ferill Ellyjar verður rifjaður upp í máli og myndum, tónlist og myndskeiðum. Laugardalshöllinni verður breytt í tímavél og gestir munu eiga kost á því að hverfa aftur til 7. áratugarins í eina kvöldstund. Ættingjar Ellyjar standa að tónleikunum ásamt Senu og munu ýmsir samferðamenn og vinir Ellyjar stíga á stokk.

Guðrún Gunnarsdóttir, einn helsti merkisberi minningar Ellyjar undanfarin ár skipar veigamikið hlutverk í tónleikahaldinu sem og Margrét Blöndal. Sú síðarnefnda hefur nýlokið við að skrifa bók um ævi Ellyjar og verður hún í försölu á tónleikunum á sérstöku tilboðsverði.

Allar helstu söngkonur landsins koma fram á tónleikunum. Meðal þeirra stjarna sem stíga á svið eru:

Andrea Gylfadóttir
Diddú
Eivör
Ellen Kristjánsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
Kristjana Stefánsdóttir
Lay Low
Ragga Gísla
Sigga Beinteins

Þessi föngulegi hópur verður dyggilega studdur af Agli Ólafssyni, Björgvini Halldórssyni, Gissuri Páli og Stefáni Hilmarssyni, auk hrynsveitar, blásara og strengjasveitar.

Heiðursgestir á tónleikunum eru þrír samferðarmenn Ellyjar, þeir Raggi Bjarna, Jón Páll Bjarnason og Guðmundur Steingrímsson. Samúel J. Samúelsson sér um útsetningar og hljómsveitarstjórn. Gréta Salóme stjórnar strengjasveitinni, sem verður eingöngu skipuð konum.

Leikstjóri er Gunnar Helgason, Móeiður Helgadóttir sér um sviðsmynd og Ellen Loftsdóttir um búninga. Handrit og lagaval var í höndum Gunnars, Guðrúnar, Margrétar og Samúels.

Kynnir er Margrét Blöndal.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
13.10.12 - Laugardagur 20:00 Elly Vilhjálmsdóttir - Minningartónleikar Laugardalshöll Sena 11.900 kr. / 9.900 kr. / 8.900 kr. / 5.900 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
Uppfæra Flash