- Þú ert hér »
Mozart með Christine Schafer

Sinfóníuhljómsveit Íslands
Mozart og Schäfer
Stjórnandi: Ilan Volkov
Einsöngvari: Christine Schäfer
Jón Nordal: Adagio
Alban Berg: Altenberg-Lieder
W.A. Mozart: Non mi dir, úr Don Giovanni og Misera, dove son, K. 369
Franz Schubert: Ófullgerða sinfónían
Christine Schäfer er ein dáðasta sópransöngkona Þýskalands. Nýverið söng hún í Rosenkavalier í Metropolitan-óperunni þar sem hún þurfti að verjast ágengni Kristins Sigmundssonar í hlutverki Ochs baróns. Adagio eftir Jón Nordal var frumflutt árið 1966 og þykir eitt hans allra besta verk: fágað, ljóðrænt og heilsteypt. Það er í uppáhaldi hjá nýjum aðalstjórnanda hljómsveitarinnar sem óskaði sérstaklega eftir að stjórna því á fyrsta ári sínu. Ófullgerða sinfónía Schuberts er lokapunkturinn aftan við starfsár hljómsveitarinnar. Þessi stórkostlega tónsmíð, í tveimur þáttum en ekki fjórum eins og almennt tíðkaðist á 19. öld, fékk aldrei að hljóma meðan Schubert lifði.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 14.06.12 - Fimmtudagur | 19:30 | Mozart með Christine Schafer - Gul - Tónleikaröð | Eldborg | Harpa | 6.500 kr. / 4.700 kr. / 3.900 kr. / 2.900 kr. / 2.000 kr. |


