- Þú ert hér »
Jethro Tull Ian Anderson

Jethro Tull Ian Anderson flytur Thick as a Brick
í Hörpu 21. júní!
Ian Anderson og hljómsveitin hans eru væntanlegir til Íslands á sumri komanda og flytur meistarastykki sitt, Thick as a Brick, í heild sinni á Eldborgarsal Hörpu fimmtudagskvöldið 21. júní. Miðasala hefst í Hörpu og á midi.is 2. febrúar nk kl 12.00.
Miðar á tónleika Jethro Tull í Hörpu þann 21. júní næstkomandi seldust upp á aðeins sjö mínútum en miðasala hófst á hádegi í dag. Þegar hefur verið samið um aukatónleika daginn eftir, 22. júní, og hefst sala á þá kl. 14.00 í dag á midi.is
NÝTT: Thick As A Brick 2
Ian Anderson, Jethro Tull, hefur tilkynnt að í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá útkomu plötunnar verði framhald hennar, Thick As Brick 2, gefið út þann 2. apríl næstkomandi. Hluti þessa nýja verks verður einnig leikinn á tónleikunum.
Jethro Tull/Ian Anderson, leiðtogi sveitarinnar, hafa nokkrum sinnum áður komið fram á tónleikum á Íslandi, síðast árið 2009 og þá seldust aðgöngumiðarnir upp samdægurs!
Tónleikar Jethro Tull Ian Anderson 2012 verða sannkallaður hvalreki fyrir fjölmarga aðdáendur sveitarinnar hérlendis því sveitin hefur ekki flutt þetta magnaða tónverk sitt í heild á sviði í fjóra áratugi eða frá því hún gaf það út á plötu árið 1972. Hér fagna þeir útgáfu Thick as a Brick með samnefndri tónleikaferð á árinu 2012. Fyrstu tónleikarnir verða í Bretlandi í apríl og síðan liggur leiðin til fleiri Evrópuríkja og Bandaríkjanna með viðkomu í Reykjavík.
Flutningur Thick as a Brick tekur hátt í 45 mínútur og verður ekki einungis tónlistarupplifun heldur sjónræn einnig. Áhrifamikil myndasýning er hluti sviðsetningar tónverksins og með hljómsveitinni kemur breskur leikari til að taka þátt í flutningnum. Auk Thick As A Brick mun bandið flytja aðra þekkta Tull smelli og ekki er útilokað að eitthvað heyrist af væntanlegum diski sveitarinnar, sem kemur út sumarið 2012.
Thick as a Brick er heildstætt tónverk eftir Ian Anderson, foringja Jethro Tull,og kom út á fimmtu hljóðversplötu sveitarinnar. Sumir tónlistargagnrýnendur töldu Aqualung frá árinu 1971 vera slíkt verk (concept album). Ian Anderson var því ósammála og ákvað að semja raunverulegt „konsept-verk“ - sem varð Thick as a Brick. Hljómsveitin fylgdi útgáfunni eftir með tónleikaferð um heiminn árið 1972.
Thick as a Brick magnaði mjög vinsældir Jethro Tull og platan náði til dæmis fyrsta sæti bandaríska Billboard-listans. Eftir að tónleikaferðinni lauk 1972 hefur Jethro Tull ekki flutt Thick as a Brick á sviði þar til að það gerist 2012, fjörtíu árum síðar.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 21.06.12 - Fimmtudagur | 20:00 | Jethro Tull Ian Anderson - | Eldborg | Harpa | 12.900 kr. / 11.900 kr. / 8.900 kr. / 7.900 kr. |
| 22.06.12 - Föstudagur | 20:00 | Jethro Tull Ian Anderson - Aukatónleikar | Eldborg | Harpa | 12.900 kr. / 11.900 kr. / 8.900 kr. / 7.900 kr. |

