Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Sena kynnir með stolti hinn eina sanna Tony Bennett ásamt hljómsveit í Eldborgarsal Hörpu,  föstudagskvöldið 10. ágúst. Bennett er listamaður sem á sér engan líka og á að baki fordæmalausan feril sem spannar yfir 60 ár, en á þeim tíma hefur hann meðal annars unnið til 17 Grammy verðlauna, tveggja Emmy verðlauna og selt rúmlega 50 milljón plötur um allan heim.

Bennett vann síðustu tvö Grammy verðlaunin nýverið. Hann hlaut þá tvenn verðlaun; nýja platan hans Duets II var valin besta popplata ársins og lagið "Body and Soul" með honum og Amy Winhouse af sömu plötu var valið besti dúett ársins.

Sérstakur gestur á tónleikunum í Hörpu 10. ágúst verður söngkonan Antonia Bennett sem mun hita upp fyrir föður sinn. Antonia er sjálf farsæl söngkona sem eins og faðir hennar kann að gera lögin að sínum. Væntanleg plata hennar sýnir þróun hennar frá klassískri þjálfun yfir í dægurlagasöngvara og höfund á heimsmælikvarða.

Hljóðfæraleikur kvöldsins verður í höndunum á margrómuðum jazzkvartett Tony Bennett.

Tónleikar Tony Bennett á Íslandi eru hluti af hljómleikaferð hans um Evrópu og er Ísland síðasti viðkomustaðurinn. Ljóst er að heimsókn Tony Bennett til Íslands er mikill hvalerki á fjörur íslenskra tónleikagesta.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
10.08.12 - Föstudagur 20:00 Tony Bennett ásamt hljómsveit - Eldborg Harpa 16.990 kr. / 14.990 kr. / 12.990 kr. / 8.990 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class