Þögul nóttin - Felix Bergsson syngur ljóð Páls Ólafssonar

Þögul nóttin – Felix Bergsson syngur ljóð Páls Ólafssonar
Kaldalón 27.apríl
Felix Bergsson sendi nýlega frá sér sína fyrstu sólóplötu, Þögul nóttin, en þar syngur hann ný lög við ástarljóð Páls Ólafssonar (f. 1827). Platan vakti athygli, fékk fína dóma og seldist prýðilega fyrir jólin. Í tilefni af útgáfunni mun Felix halda tónleika í Kaldalóni í Hörpu föstudaginn 27. apríl ásamt þeim Jóni Ólafssyni og Stefáni Má Magnússyni en þeir félagar unnu plötuna að öllu leyti með Felix. Á tónleikunum verða lögin af plötunni flutt auk þess sem þeir félagar flytja lög sem þeir hafa verið með í farteskinu undanfarin ár, lög úr söngleikjum og af öðrum vettvangi.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|


