- Þú ert hér »
Lúðrasveitin Svanur Vortónleikar

Lúðrasveitin Svanur vortónleikar
28.mars í Norðurljósum
Á vortónleikum Lúðrasveitarinnar Svans verður boðið upp fjölbreytt úrval af góðri tónlist og ættu allir að geta fundið fundið eitthvað fyrir sitt hæfi. Efnisskráin er vegleg og verða meðal annars flutt verk eftir Holst og Wagner auk Reykjavíkurlaga í útsetningu Ellerts Karlssonar. Tvö einleiksverk eru á efnisskránni, Concertino eftir Chaminade og A Trumpeter‘s Lullaby eftir Leroy Andersson. Einleikari á flautu er Björg Brjánsdóttir og á trompet Jón Óskar Guðlaugsson.
Lúðrasveitin Svanur var stofnuð árið 1930. Lúðrasveitir eru fastur liður í hátíðarhaldi Íslendinga og flestir tengja starf þeirra fyrst og fremst við leik í skrúðgöngum og við önnur opinber tækifæri. Starf lúðrasveita er mun umfangsmeira og heldur Lúðrasveitin Svanur þrjá til fjóra tónleika á ári auk þess að fara reglulega í tónleikaferðir til útlanda. Þar hefur sveitin ætíð flutt íslensk verk við mikinn fögnuð heimamanna hverju sinni. Um 50 manns á aldrinum 16-60 ára spila nú með sveitinni.
Stjórnandi Lúðrasveitarinnar Svans er Brjánn Ingason. Brjánn er fagottleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur verið stjórnandi Svansins frá haustinu 2010.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 28.03.12 - Miðvikudagur | 20:00 | Lúðrasveitin Svanur Vortónleikar - | Norðurljós | Harpa | 2.500 kr. |

