Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

BRYAN FERRY
27. & 28. maí í Eldborg

4664 í okkar höndum ehf kynnir: Goðsögnin Bryan Ferry, einn farsælasti dægurtónlistarmaður samtímans, kemur hingað til lands ásamt hljómsveit og heldur tónleika í Eldborg á hvítasunnudag 27. maí. Hér eru á ferð sannkallaðir stórtónleikar, þar sem á fjórða tug tónlistar- og tæknimanna eru með í för til að sjá um að bæði tónlist og sjónræni hluti tónleika-dagskrárinnar skili sér með þeim brag sem hæfir hljómleikum Bryan Ferry. Þetta verða jafnframt fyrstu tónleikar hans í ár og þeir fyrstu síðan hann lauk Olympia tónleikaferð sinni í London í desember í fyrra, sem samastóð af 50 tónleikum - þar sem uppselt var á hvern einasta konsert. Tónleikarnir í Reykjavík eru einstakt tækifæri til að sjá hann á tónleikum, því þetta eru einu tónleikarnir sem tilkynntir hafa verið með Bryan Ferry í ár. Tónleikarnir eru á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík.

Tilefnið er líka sérstakt: Tónleikar Bryan Ferry í Reykjavík marka upphaf alþjóðlegra Nelson Mandela daga á Íslandi, Nelson Mandela Days 2012, sem haldnir eru til heiðurs Mandela og hugsjónum hans. Tónleikarnir eru í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík, og eru á dagskrá hátíðarinnar sem haldin er dagana 18. maí - 3. júní. Fyrirhugaðir eru fleiri tónleikar síðar á árinu til vitundarvakningar og stuðnings mannúðarsjónarmiðum Mandela. Mandela Days Reykjavik 2012 eru haldnir í samvinnu við Nelson Mandela Foundation.

Á tónleikunum í Eldborg mun Bryan Ferry leika lög úr ýmsum tímabilum ferils sins, bæði efni af sóló breiðskífum sínum sem og úr ferli sínum með Roxy Music. Dagskráin er að hluta til byggð á Olympia tónleikunum sem hann bauð upp á síðasta ári og fékk einróma lof gangrýnenda. Olympia tónleikaferðin var farin í kringum samnefndar breiðskífu sem kom út árið 2010 og hlaut glimrandi dóma; “Ferry's finest in 30 years” (BBC), “Supernatural” (GQ), “Confident & remarkably fresh sounding” (Pitchfork), “An an elegant celebration of sexual tension” (Rolling Stone), “Ferry continue's to smoulder” (Mojo), “A sensuous concoction … that has the luxurious timelessness of classic Ferry” (The Daily Telegraph),  “It's … vintage Ferry” (The Washington Post), “his most experimental deliriously Roxy-ish recordings in decades.” (FILTER), “One of Ferry's best” (Q), “Olympia is the essence of Ferry (…) The coolest man in pop” (The Sunday Times).

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
27.05.12 - Sunnudagur 21:00 Bryan Ferry - Eldborg Harpa 0 kr.
28.05.12 - Mánudagur 21:00 Bryan Ferry - Eldborg Harpa 0 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash