Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Hljómsveitin Nýdönskfagnar í ár 25 ára afmæli sínu og í tilefni af því er blásið til stórtónleika í Eldborgarsal Hörpu, laugardaginn 22. september og menningarhúsinu Hofi Akureyri 29. september.

Í framlínu sveitarinnar eru tveir af bestu söngvurum okkar Íslendinga, þeir Daníel Ágúst Haraldsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson. Þéttskipaðir að baki þeim eru svo þeir Jón Ólafsson, Stefán Hjörleifsson og Ólafur Hólm.

Einvalalið tónlistarfólks mun samfagna piltunum og koma fram þetta kvöld, meðal annars þau Högni Egilsson og Sigríður Thorlacíus úr Hjaltalín, KK, Bryndís Halla Gylfadóttir, Urður Hákonardóttir úr Gus Gus auk hinnar einstöku Svanhildar Jakobsdóttur.

Á löngum og litríkum ferli hefur sveitin sent frá sér urmul eftirminnilegra laga og má þar nefna lög eins og Horfðu til himins, Alelda, Hjálpaðu mér upp, Nostradamus og Frelsið.
Á tónleikunum mun Nýdönsk leika sín þekktustu lög í bland við annað áhugavert efni sem rammar inn glæsilegan feril.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
22.09.12 - Laugardagur 20:00 Nýdönsk í 25 ár - Afmælistónleikar í Hörpu Eldborg Harpa 6.990 kr. / 5.990 kr. / 4.990 kr. / 3.990 kr.
22.09.12 - Laugardagur 23:00 Nýdönsk í 25 ár - Afmælistónleikar í Hörpu Eldborg Harpa 6.990 kr. / 5.990 kr. / 4.990 kr. / 3.990 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class