- Þú ert hér »
Reykjavík Midsummer Music 2012.

Reykjavík Midsummer Music 2012
Tónlistarhátíðin Reykjavík Midsummer Music verður haldin í fyrsta sinn dagana 17.-19. júní 2012 í Hörpu. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari en hann mun leika kammermúsík ásamt fríðum hópi úr landsliði íslenskra tónlistarmanna.
Föstudaginn 15. júní verður eins konar forleikur að hátíðinni þegar listamennirnir bjóða áheyrendum á opna vinnustofu í Norðurljósum. Þar verður skyggnst á bak við tjöldin og ljósi varpað á ýmsa fleti tónlistarinnar með óformlegu spjalli og sýnidæmum. þar sem ?erka sem flutt verða áeðra k ar költ status Vldt
Hátíðin hefst svo í Norðurljósasal 17. júní kl. 20 á tónleikum með glitrandi tónverkum hins franska Maurice Ravel stillt upp á móti dramatískum hausttónum hins þýska Jóhannesar Brahms.
Mánudaginn 18. júní verða haldnir tvennir tónleikar, annars vegar hádegistónleikar kl. 12.15 helgaðir verkum Jóns Nordal og Þorkels Sigurbjörnssonar og hins vegar kvöldtónleikar kl. 20.00 þar sem m.a. píanókvintett breska tónskáldsins Tómasar Adés (f.1971) verður frumfluttur á Íslandi, en óhætt er að telja Adés í hópi mest spennandi tónsmiða samtímans.
Þriðjudaginn 19. júní kl. 21.00 verður svo Grand Finale í Eldborg þar sem allir flytjendur hátíðarinnar koma fram, en sérstakur gestur á þeim verður Megas sem flytur eigin lög við undirleik Víkings Heiðars sem og í útsetningum fyrir strengjakvintett. Meðal annarra verka á efnisskránni verða sellóverkið Bow to String eftir Daníel Bjarnason sem og Horntríó (1982) eftir Ungverjann György Ligeti (1923-2006), en verkið hefur þegar öðlast eins konar költ status, enda tónlist á ystu nöf.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 17.06.12 - Sunnudagur | 20:00 | Reykjavík Midsummer Music 2012. - Opnunartónleikar | Norðurljós | Harpa | 3.500 kr. |


