- Þú ert hér »
Á vit... - Íslenski dansflokkurinn og GusGus

Á vit... er framandi ferðalag skilningarvitanna um heim dans, tónlistar og myndmáls.
Íslenski dansflokkurinn og GusGus bjóða til veislu, í samstarfi við Hörpu og Listahátíð í Reykjavík, þar sem sameinaðir eru kraftar ólíkra listforma og frumsýndar verða stuttmyndir Reynis Lyngdal og Katrínar Hall. Filippía Elísdóttir og Aðalsteinn Stefánsson sjá um umgjörð verksins, leikmynd og búninga. Sameinaður sköpunarkraftur hópsins með dansara flokksins í fararbroddi ásamt nýrri frumsaminni tónlist frá GusGus er uppspretta verksins. Á vit... býður áhorfendum í ferðalag þar sem dans, tónlist og myndir kalla fram framandi viðbrögð skilningarvitanna. Þetta er óhefðbundið verkefni þar sem nokkrir af fremstu listamönnum Íslands taka höndum saman og leiða okkur inn í veröld – iðandi af lífi og óvæntum uppákomum á vorkvöldi í miðborg Reykjavíkur.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 18.05.12 - Föstudagur | 21:00 | Á vit... - Íslenski dansflokkurinn og GusGus - | Norðurljós (Standandi) | Harpa | 3.900 kr. |
| 19.05.12 - Laugardagur | 21:00 | Á vit... - Íslenski dansflokkurinn og GusGus - | Norðurljós (Standandi) | Harpa | 3.900 kr. |
| 19.05.12 - Laugardagur | 23:00 | Á vit... - Íslenski dansflokkurinn og GusGus - | Norðurljós (Standandi) | Harpa | 3.900 kr. |


