Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Kammersveit Reykjavíkur undir stjórn Richard Egarr leikur Bach

Hljómsveitarsvíturnar fjórar eftir Johann Sebastian Bach, sem teljast meðal mestu snilldarverka tónskáldsins, í flutningi  Kammersveitar Reykjavíkur á Listahátíð í Reykjavík 2012.

Tónleikarnir á Listahátíð eru fyrstu tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur í Eldborg og jafnframt fyrstu tónleikarnir þar sem að öllu leyti eru helgaðir meistara Bach.

Hljómsveitarsvítur voru í tísku á barokktímanum, en hinn franski Jean-Babtiste Lully er talinn hafa komið tískubylgjunni af stað eftir að hann tók saman forleiki og dansa úr óperum sínum til flutnings á tónleikum. Smám saman fóru önnur tónskáld að semja svítur af þessu tagi sérstaklega sem sjálfstæð tónverk, en það er mál manna að hljómsveitarsvítur Bachs beri höfuð og herðar yfir sambærileg verk annarra tónskálda. Hljóðfæraskipanin er ólík í svítunum fjórum, í fyrstu svítunni kallast tvö óbó og fagott á við strengjasveitina, þriðja og fjórða svítan skarta að auki þremur trompetum og pákum sem gefa þeim sérlega hátíðlegt yfirbragð en önnur svítan er í raun flautukonsert með óvenjulegri þáttaskipan. Martial Nardeau túlkar einleikshlutverk annarrar svítunnar með frönskum þokka og bregður á glens með tréflautuna sína í hinum fjöruga „Badinerie“-þætti. Allar svíturnar hefjast á forleik í frönskum stíl en svo fylgir röð mismunandi dansþátta og má búast við að tónleikagesti langi til að stíga léttan menúett þegar þeir ganga út í vorið að afloknum tónleikunum.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
20.05.12 - Sunnudagur 14:00 Kammersveit Rvík og Richard Egarr - Bach - Eldborg Harpa 3.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
Uppfæra Flash