- Þú ert hér »
Ljóðatónleikar Cirstoph Prégardien og Ulrich Eisenlohr

Ljóðatónleikar - Christoph Prégardien og Ulrich Eisenlohr
Einn fremsti ljóðasöngvari heims flytur valin ljóð Shuberts og Schumann
Einn fremsti ljóða- og óratoríusöngvari heims flytur valin ljóð Schubert og Schumann ásamt Ulrich Eisenlohr píanóleikara. Það er mikill fengur í komu þeirra hingað til lands, en auk ljóðatónleikanna á Listahátíð halda þeir masterklass fyrir söngvara og píanóleikara.
Þýski tenórsöngvarinn Christoph Prégardien er hátt skrifaður lýrískur tenór og mikils metinn kennari, sem hefur unnið mikið frumkvöðlastarf í útbreiðslu kammertónlistar. Píanóleikarinn Ulrich Eisenlohr hefur einnig sérhæft sig í kammertónlist og hefur skipað sér virðingarsess með löngum ferli sínum sem konsertpíanisti og meðleikari í Evrópu, Ameríku og Japan. Eisenlohr er listrænn stjórnandi og píanóleikari í heildarútgáfu NAXOS á ljóðum Schubert.
Í tengslum við tónleika Pregardien og Eisenlohr á Listahátíð í vor mun Félag íslenskra söngkennara (FÍS), í samstarfi við Listahátíð, standa fyrir masterklass með þeim í Hörpu, Kaldalóni, þriðjudaginn 29. maí frá kl 10.00 – 17.00. Námskeiðið miðast við starfandi söngvara og píanista, frekar en nemendur og er hér um einstakt tækifæri fyrir íslenska listamenn að ræða. Til námskeiðsins er boðið söngvara og píanóleikara saman og fær hvert par um 45 mínútur og ætlunin er að taka á móti 7 pörum.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 27.05.12 - Sunnudagur | 15:00 | Ljóðatónleikar Cirstoph Prégardien og Ulrich Eisenlohr - | Norðurljós | Harpa | 4.500 kr. |


