Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Páll Ragnar Pálsson
Kátínuvísindin og fleiri verk

Listahátíð í Reykjavík býður upp á tónleika þriggja tónskálda sem kynna nýja tónlist sína. Þau eiga það sameiginlegt að búa erlendis og koma sjaldan fram á Íslandi og er því mikill fengur að því að fá þau á Listahátíð. Tónskáldin eru Anna Þorvaldsdóttir, Páll Ragnar Pálsson og Berglind María Tómasdóttir og halda þau tónleika hvert fyrir sig í Kaldalóni.

Páll Ragnar – Kátínuvísindin og fleiri verk í flutningi Duo Harpverk og Tui Hirv

Kátínuvísindin, eftir Pál Ragnar Pálsson, er verk í tveimur þáttum þar sem ljóð Eiríks Arnar Norðdahls, Hýperbólusetning og Parabólusetning, renna saman við hörpu, ásláttarhljóðfæri og rödd svo úr verður eitt magnað hljóðfæri.  Verkið er nú frumflutt hér á landi af þeim Tui Hirv tenórsöngkonu og Duo Harpverk; Katie Buckley hörpuleikara og Frank Aarnink ásláttarleikara. Auk þess mun Duo Harpverk frumflytja verk eftir Völu Gestsdóttur, Pétur Grétarsson og rússneska tónskáldið Andrew Gen. Popoff. Andrew segir um verk sitt Dance on the Water að í því noti hann hljóð til að túlka þær sjónrænu taktbreytingar sem sjá má á yfirborði vatns af völdum vinds, sólarglampa, skordýra sem skauta á yfirborðinu eða fallinna blóma.                                                                                          Duo Harpverk; Katie Buckley og Frank Aarnink

Páll Ragnar um tilurð verksins Kátínuvísindin

„Þegar ég las ljóðabækur Eiríks Arnar Norðdahls höfðuðu þessi ljóð, Hýperbólusetning og Parabólusetning, strax til mín. Ég tengdi við þetta óagaða, frjálsa flæði hugsana sem hefur enga heildræna merkingu en varpar upp kristaltærum myndum í huga okkar sem við skiljum án þess að það sé nokkur merking á bak við þær, líkt og með tónlist. Tilfinningalíf okkar er aldrei ástand, heldur flæði, sem við Eiríkur reynum báðir að fanga hvor með sinni aðferðinni.

Hýperbólusetningu samdi ég sumarið 2010 og Parabólusetningu ári síðar. Þetta ár sem leið á milli þessara tveggja verka var gríðarlega afkastamikið og verkin sýna vel hvernig ég þróaðist á þessum tíma. Í Hýperbólusetningu reyndi ég að laga tónlistina að taktinum í textanum og þannig varð verkið eins og röð af litlum einingum þar sem fókusinn er á augnablikinu frekar en heildarmyndinni. Hinsvegar, í Parabólusetningu hafði ég sama gegnumgangandi púlsinn undir öllu verkinu og þó það hljómi mótsagnakennt þá gaf það mér meira frelsi til að vinna með óreiðuna sem ljóðið fangar.“

Tónleikarnir eru 60 mínútur, án hlés.

Kaldalónsþrenna
Verð á eina tónleika er 2.500 kr. en ef keyptur er miði á alla þrenna tónleikana er verðið alls 4.500 kr. eða 1.500 kr. á tónleika

 

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
01.06.12 - Föstudagur 17:00 Páll Ragnar Pálsson - Kátínuvísindi og fleiri verk - Kaldalón Harpa 2.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class