Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Stórtónleikar Hljómskálans
Íslenskt tónlistarpartí með bestu vinum Hljómskálans

Það stefnir allt í mikið stuð á stórtónleikum Hljómskálans í Eldborgarsal Hörpu á laugardagskvöldið á Listahátíð í Reykjavík. Hin frábæra Hljómskálastemning sem ríkt hefur í þessum vinsælum þáttum mun skila sér beint í æð til áhorfenda sem fá að njóta lifandi flutnings frábærra tónlistarmanna á smellum úr þáttunum og óvæntum útsetningum á elskuðum dægurperlum. Yfir tuttugu tónlistarmenn koma fram á þessum sumarlegu tónleikum, sem einnig verða sendir út í beinni útsendingu á RÚV.

Hljómskálasmellir sem hljóma verða meðal annars: Líttu sérhvert sólarlag með Valdimar og Ágústu Evu, Ef ég gæti hugsana minna, vinsælasta lag Rásar 2 með Jónasi Sigurðssyni og Magnúsi Þór,  How are you today – með Unnsteini úr Retro Stefson og Agli Sæbjörnssyni, Ást mína ef ég dey – með Ragnhildi Gísladóttur og Lay Low, Ameríka – með Valdimar og Steina og Berlín – með Bogomil Font og Sigurði Guðmundssyni.

Klassísk dægurlög í nýjum útsetningum fá einnig sinn sess, svo sem Þetta er jörðin sem ég ann – með Jónasi Sigurðssyni og Magnúsi Þór, Gestir út um allt – með Unnsteini úr Retro Stefson og Frelsið – með Birni Jörundi og Unnsteini, Ekkert mál, Okkar eigin Osló og tónlistarópusinn Í sælgætislandi sem verður fluttur í fullri lengd af Óttari Proppé, Ragnhildi Gísladóttur og fleiri. Hjálmar og Jimi Tenor taka einnig saman lögin Messenger of Bad News og Áttu vinur augnablik.

Það verða einnig glæný lög sem fá að heyrast á tónleikunum meðal annars með Megasi og Agli Sæbjörnssyni, Bogomil Font, Sigurði Guðmundssyni, Memphismafíunni og fleiri og fleiri.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
02.06.12 - Laugardagur 20:30 Hljómskálinn - Eldborg Harpa 0 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class