- Þú ert hér »
Úr ljóðum Laxness

Úr ljóðum Laxness - Kammerkór Norðurlands
Norðurljós 22.apríl
Kammerkór Norðurlands var stofnaður á haustdögum ársins 1998. Sigurbjörg Kristínardóttir stjórnaði kórnum fyrstu tvö árin en Guðmundur Óli Gunnarsson hefur verið við stjórnvölinn frá árinu 2000. Í kórnum er nú söngfólk af Norðurlandi, allt frá Kópaskeri vestur til Sauðárkróks. Hópurinn samanstendur af menntuðum söngvurum og tónlistarfólki og gerir það kórnum kleift að æfa í skorpum og vinna markvisst þrátt fyrir dreifða búsetu. Kórinn gaf út sinn fyrsta hljómdisk á fyrir rúmu ári og er mjög stoltur af diskinum. Í okbóber síðastliðinn hlotnaðist kórnum sá heiður að vera boðið að syngja á tónleikum á dagskrá íslenskra bókmenntadaga í Zofingen í Sviss, sem haldnir voru í framhaldi af bókahátíðinni í Frankfurt. Að auki hélt kórinn tvenna tónleika í öðrum borgum í Sviss og voru viðtökur mjög góðar í öll skiptin. Að lokum er mikilvægt að það komi fram að kórinn er menntuðu tónlistarfólki ómetanlegt tækifæri til að iðka list sína og styrkir þannig stoðir samfélagsins í hinum dreifðu byggðum Norðurlands
Á undanförnum árum hefur Kammerkór Norðurlands einbeitt sér að flutningi íslenskra tónverka og meðal annars frumflutt nokkur slík, sem sum hafa verið samin sérstaklega fyrir kórinn. Má þar nefna tónskáldin Atla Ingólfsson, Báru Grímsdóttur, Guðmund Óla Gunnarsson, Hauk Tómasson, Hildigunni Rúnarsdóttur, Jaan Alavere, Jón Ásgeirsson, Pál Barna Szabó og Snorra Sigfús Birgisson. Það hefur verið meðvituð stefna og metnaðarmál kórsins og stjórnanda hans að hvetja íslensk tónskáld til dáða með því að kaupa af þeim verk og stuðla þannig að vexti og viðgangi íslenskrar kórtónlistar. Hvarvetna hefur kórinn hlotið glimrandi dóma fyrir flutning sinn og túlkun.
Tilgangur og markmið Kammerkórs Norðurlands er að flytja íslenska kórtónlist, koma henni á framfæri og sýna fram á gæði og gildi hennar. Einnig að koma góðum skáldskap á framfæri í formi tónlistar. Jafnframt gefur kórinn tónlistarmenntuðum og metnaðarfullum einstaklingum í hinum dreifðu byggðum Norðurlands ómetanlegt tækifæri til þátttöku í afar krefjandi kórstarfi og miðlun góðrar tónlistar sem þar af leiðandi eflir menningarlíf landsins. Kórinn hefur mikinn áhuga á að efla íslenska samtímatónlist og hefur því haft samband við nokkur tónskáld og þau beðin að semja kórverk við ljóð Halldórs Laxness
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 22.04.12 - Sunnudagur | 20:00 | Úr ljóðum Laxness - | Norðurljós | Harpa | 2.500 kr. |

