Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Hafliði, Brahms og Norðurljósatangó

Selkórinn heldur kveðjutónleika fyrir ástkæran stjórnanda okkar, Jón Karl Einarsson, sem hefur haldið um tónsprotann í 21 ár.
 
Við hefjum upp raust okkar með fjórum íslenskum þjóðlögum eftir Hafliða Hallgrímsson sem hann hugsaði sem eina heild; Hættu að gráta hringaná, Sof  þú blíðust barnkind mín, Nú vil ég enn í nafni þínu og Veröld fláa.

Næst á efnisskránni  eru  þrjú stutt lög eftir Johannes Brahms: In stiller Nacht, Abschiedslied, Dein Herzlein mild. Þá er næst Geistliches Lied eftir Brahms. Síðan flytjum við jarðarfararlag Brahms, Nänie  sem er sérlega fallegt verk en sjaldan flutt vegna þess hve það þykir krefjandi og er vel við hæfi að kveðja Jón Karl með slíkum söng. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna leikur undir í þessu verki.

Eftir hlé setjum við okkur í allt aðrar stellingar og tangóinn tekur völdin. Tónlistarhópurinn Fimm í Tangó flytja; Haavetango – Draumatangó og Täysikuu – Fulla tungl. Síðan tekur kórinn við með dyggri aðstoð Fimm í tangó og syngur Lífið, ljóðið og ég , Lag: Haraldar V. Sveinbjörnssonar og Drykkfelld kona, Lag: Hafdísar Bjarnadóttur.  Að lokum verða flutt vinsæl íslensk dægurlög sem hafa verið útsett sérstaklega fyrir kórinn í tangóstíl, Kötukvæði, úts. Skarphéðins Einarssonar, Litli tónlistarmaðurinn, úts. Sigurðar Geirssonar,Við gengum tvö, úts. Kára H. Einarssonar og Tondeleyó úts. Hrafnkels Orra Egilssonar.

Flytjendur ásamt Selkórnum:
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
Fimm í tangó
Dagný Björgvinsdóttir, píanó

Stjórnandi:
Jón Karl Einarsson

Hljómsveitarstjóri:
Oliver Kentish

Tangódansarar:
Bryndís Halldórsdóttir
Hany Hadaya

Raddþjálfun:
Signý Sæmundsdóttir

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
12.05.12 - Laugardagur 17:00 Hafliði, Brahms og Norðurljósatangó - Norðurljós Harpa 3.000 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
Uppfæra Flash