Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Helgi Björns endurtekur leikinn á Þjóðhátíðardaginn með því að halda tónleika í Eldborg á 17. júní undir nafninu Íslenskar Dægurperlur.

Þar mun stórskotalið íslenskra söngvara stíga á svið og flytja íslenska popp klassík undir stjórn Samúels j. Samúelssonar sem hefur sér til fulltyngis vaska sveit tónlistarmanna, brass sveit og strengjasveit.

Þetta verða samskonar tónleikar og Helgi hélt  í Eldborg í fyrra, þegar þakið ætlaði bókstaflega að rifna af salnum í gargandi snilld og gleði, þar sem þemað var íslensk dægurlög á lýðveldistímanum.

Töfrum líkast var það í fyrra - hvernig verður það nú?

Meðal söngvara í ár eru Valdimar, Ragnhildur Gísladóttir, Sigríður Thorlacius , Eivör, Jón Jónsson, K K og John Grant og verður allt lagt í þetta til að gera þessa tónleika enn flottari en fyrir ári síðan.

Listrænir stjórnendur eru búnir að velta sér upp úr hundruðum laga og verður spennandi að sjá hvað þeir grafa upp að þessu sinni.

Í hljómsveitinni er valinn maður í hverju rúmi:  Einar Valur Scheving  trommur, Valdimar Kolbeinn bassi, Ómar Guðjónsson gítar, Stefán Már Magnússon gítar, Davíð Þór Jónsson orgel, Kjartan Valdemarsson píanó

Síðan til þess að halda þessu öllu saman og hafa stjórn á veislunni verður Ragnar Kjartansson myndlistarmaður kynnir og skemmtanastjóri.

 

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
17.06.12 - Sunnudagur 21:00 Íslenskar Dægurperlur - Eldborg Harpa 0 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
Uppfæra Flash