Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Morfís úrslitakeppni
Eldborg 26.apríl

Úrslit MORFÍs (Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi) fara fram hinn 26. apríl næstkomandi og er þetta í fyrsta skipti sem þau verða haldin í Eldborgarsal Hörpu. Búast má við magnþrunginni og spennandi keppni, en að þessu sinni eru það lið Menntaskólans við Hamrahlíð og Menntaskólans í Reykjavík sem mætast. Mikill metingur ríkir milli skólanna og allt útlit fyrir gríðarlega hörku þar sem ekkert verður gefið eftir og allt lagt undir til þess að vinna MORFÍs bikarinn í ár.

Umræðuefnið verður „Stríð fyrir frið” og mælir Menntaskólinn við Hamrahlíð með, en Menntaskólinn í Reykjavík á móti.

Lið MH skipar:
Jón Pétur Þorsteinsson
Katrín Ásmundsdóttir
Sigurbjartur Sturla Atlason
Ívar Vincent Smárason

Lið MR skipar:
Eygló Hilmarsdóttir
Kári Þrastarsson
Ólafur Kjaran Árnason
Jóhann Páll Jóhannsson

MORFÍs - Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á íslandi - er keppni með útsláttarfyrirkomulagi þar sem öflugustu ræðumenn framhaldsskóla Íslands takast á og keppa í rökræðulist. Viku fyrir keppni ákveða liðin umræðuefni sín á milli og jafnframt hver mælir með og hver á móti. Í hefðbundnum keppnum eru þrír hlutlausir dómarar með dómararéttindi MORFÍs sem annast dómgæslu keppna, en í úrslitaviðureignum eins og þessari verða þeir fimm talsins.

Ræðumenn eru þrír í hverju liði ásamt einum liðsstjóra sem kynnir liðið í upphafi og annast ræður og svör meðan á keppni stendur.

Fundarstjóri verður Gísli Marteinn Baldursson, en hann tók þátt og sigraði í MORFÍs á árum áður. Tveir tímaverðir taka tímann á hverri ræðu og koma þeir hvor frá sínum skóla.

Þegar báðum umferðum er lokið mun framkvæmdastjórn MORFÍs stíga á svið þar sem formaðurinn kynnir stjórnina, heldur ræðu og veitir verðlaun fyrir alla stigahæstu ræðumenn keppninnar í ár. Þegar dómarar hafa svo lokið sinni vinnu mun oddadómari annars vegar tilkynna stigahæsta ræðumann kvöldsins, sem hlýtur titilinn „Ræðumaður Íslands”, og hins vegar kunngera hvort liðið hefur borið sigur úr býtum.


 

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
26.04.12 - Fimmtudagur 20:00 Morfís úrslitakeppni - Eldborg Harpa 1.200 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
Uppfæra Flash