Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Tónleikar Martins Berkofsky í Hörpu 26. maí 2012.

Martin Berkofsky hefur háð hetjulega baráttu við krabbamein undanfarin tíu ár og ætíð haft betur. Hann hefur að auki haldið hundruð tónleika til styrktar krabbameins-sjúkum, til að auðvelda þeim að greiða oft dýran lækniskostnað, og margoft á sjúkrahúsum til að auka þeirra lífsfyllingu. Hann hélt uppá sextugsafmælið sitt með því að hlaupa 800 km í Bandaríkunum og halda tónleika á hverju kvöldi eftir hlaup dagsins. Þannig safnaði hann yfir 10 milljónum króna sem runnu til þeirra sem voru með krabbamein á hverjum stað. Hann hefur spilað mikið í Austurlöndum nær, enda armenskur gyðingur að uppruna, og á Ítalíu síðustu ár allt til stuðnings baráttunni við krabbamein. Sjálfur hefur hann aldrei haft neinn áhuga á peningum

Martin Berkofsky kom inní íslenskt tónlistarlíf eins og hvirfilbylur uppúr 1980 og var þá þegar ljóst að þar fór stór maður í listsköpun sinni.   Martin var undrabarn og spilaði fyrst 7 ára gamall með sinfóníuhljómsveit Chicagoborgar, píanókonsert eftir Mozart. Æskan var honum eins og flestum sem eru undrabörn í tónlist ekki auðveld og hann fékk aldrei að spila fótbolta sem strákur, sem hann langaði mikið til. Hann flúði foreldra sína um tvítugt og hélt til Evrópu og keypti sér Harley Davidson mótorhjól og ferðaðist víða og hélt tónleika. Hans stóra ást í lífinu hefur ætíð verið Franz Liszt og hann fann ýmis verk eftir þann snilling sem áður höfðu legið gleymd víðsvegar í Evrópu. Hann varð síðan nokkurs konar sendiherra Bandaríkjanna og spilaði víða á vegum Bandaríkjastjórnar, þar til hann sendi gamla Bush bréf um að hann væri ekki sáttur við árásarstefnu Bandaríkjanna. Þá var hann skorinn burt af sendiherralistanum og honum allar leiðir lokaðar.

Fljótlega eftir að hann kom til Íslands, en ást á konu leiddi hann þangað, lenti hann í hrikalegu slysi á sínu mótorhjóli og mölbraut á sér handlegginn fjórtán brot. Honum var sagt að hann gæti aldrei spilað aftur en þökk sé ótrúlegum baráttuvilja og að hans mati lækningu að handan - með hjálp Einars frá Einarsstöðum og Árna Björnssonar læknis, tókst honum að komast aftur að sínu hljóðfæri.

Þegar að veruleg hreyfing komst á að byggja tónlistinni hús á Íslandi um 1983 gerðist hann strax ötull baráttumaður fyrir þeirri hugmynd með þeim eina hætti sem hann kunni, að spila stuðningstónleika. Hann tók þátt í tónleikum í Austurbæjarbíói og hélt sjálfstæða tónleika í Þjóðleikhúsinu fyrir troðfullu húsi, spilaði út um land og hann spilaði í Harvard í Bandaríkjunum málinu til framdráttar. Hann gaf út snældu málinu til stuðnings – þá voru geisladiskarnir ekki komir – sem seldist ótrúlega vel.
Martin er nú að berjast við mjög erfitt krabbamein og það er okkur gömlum félögum í Samtökum um Tónlistarhús mikill heiður að fá hann hingað til lands til að halda tónleika til stuðnings Krabbameinsfélagi Íslands í Hörpunni, en til þeirrar byggingar lagði hann mikilsverðan skerf. Hann mun flytja okkur verk Liszts sem nýlega átti 300 ára afmæli og enn á erindi við okkur með tónlist sinni. Fáir núlifandi listamenn túlka þennan risa píanósins jafnvel og Martin Berkofsky.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
26.05.12 - Laugardagur 20:00 Tónleikar Martin Berkofsky til styrktar Krabbameinsfél. Íslands - Norðurljós Harpa 8.000 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash