- Þú ert hér »
Evrópuhátíð

European Jazz Orchestra og Stórsveit Reykjavíkur halda stórtónleika í Eldborg 13. maí. Tónleikarnir eru lokahnykkur á Evrópuviku sem fram fer dagana 7. – 13. maí.
European Jazz Orchestra er skipuð ungu tónlistarfólki í fremstu röð sem kemur vítt og breitt frá Evrópu. Hljómsveitin fær á hverju ári til liðs við sig þekkt tónskáld til að semja og útsetja nýja efnisskrá. Stjórnandi hljósveitarinnar í ár er Jere Laukkanen sem er hvað þekktastur fyrir að blanda saman nútíma djassi og afríkönskum- og kúbverskum takti. Laukkanen hefur samið tónlist fyrir allar helstu sjónvarspstöðvar Finnlands og einnig fyrir fjölmargar stórsveitir.
European Jazz Orchestra hefur að leiðarljósi að gera hlustendum kleift að fá innsýn í tónlistarflóru ólíkra þjóða og er efnisskráin unnin með það í huga.
Stórsveit Reykjavíkur mun leika nýja og nýlega tónlist sem samin hefur verið sérstaklega fyrir hljómsveitina. Annarsvegar verða flutt verk eftir Agnar Má Magnússon, Hilmar Jensson og Kjartan Valdemarsson af nýjustu plötu sveitarinnar; HAK, en þess má geta að hún var valin jazzplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum nú nýverið. Hinsvegar verður flutt svíta finnska tónskáldsins Eero Koivistoinen Tvísöngur, en hún byggir á íslenskum þjóðlagastefjum.
Stórsveit Reykjavíkur hefur fengið afbragðs dóma gagnrýnenda fyrir leik sinn. Sveitin hlaut Íslensku Tónlistarverðlaunin 2005 sem jazz flytjandi ársins og 2011 fyrir jazz plötu ársins. Stórsveitin hefur sent frá sér fimm geisladiska í eigin nafni, auk þess að koma fram á nokkrum diskum annarra flytjenda, þeirra á meðal Bubba Morthens og Sálarinnar hans Jóns míns.
Tónlistarunnendur ættu ekki að láta þennan viðburð fram hjá sér fara.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 13.05.12 - Sunnudagur | 20:00 | Evrópuhátíð - | Eldborg | Harpa | 0 kr. |


