- Þú ert hér »
Zoe Lyons - Uppistand á Hinsegin dögum

Einn af hápunktum Hinsegin daga í sumar er heimsókn hinnar óborganlegu Zoe Lyons frá Bretlandi sem skemmtir í Norðurljósum í Hörpu miðvikudagskvöldið 8. ágúst. Á undanförnum árum hefur Zoe ferðast víða um heim og hvarvetna slegið í gegn. Þá er uppistand hennar löngu orðið einn af eftirsóttustu viðburðum Edinburgh Fringe Festival og grín hennar í bresku útvarpi og sjónvarpi nýtur ómældra vinsælda. Á liðnu ári hlaut hún eina mestu viðurkenningu sem breskum skemmtikröftum hlotnast, London Comedy Award.
„Meinfýsni hennar er hrein snilld ... fáar stjörnur hafa þotið jafn hratt og Zoe upp á stjörnuhimin grínistanna. Krafturinn í henni dugar til að kaffæra hvern þann áhorfanda í salnum sem veður í þeirri villu að kvenfólk sé ekki fyndið!“
The Guardian
„Zoe Lyons lýsti upp sviðið í klukkutíma með ósviknum kvikindisskap svo að salurinn lá gjörsamlega í hlátri að fyndni hennar. Ég efast um að ég hafi nokkurn tíma í lífinu hlegið annað eins að uppistandi.“
Edinburghguide.com
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 08.08.12 - Miðvikudagur | 21:00 | Zoe Lyons - Uppistand á Hinsegin dögum - | Norðurljós | Harpa | 2.000 kr. |


