Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Á hátíð Hinsegin daga í Reykjavík 2011 var efnt til klassískra tónleika í Hörpu undir yfirskriftinni „Á hinsegin nótum“ við húsfylli og mikinn fögnuð gesta. Á Hinsegin dögum í sumar verður athyglinni beint að hinsegin söngleikja- og djasstónskáldum. Kristjana Stefánsdóttir syngur lög eftir Cole Porter, Leonard Bernstein, Stephen Sondheim, Jerry Herman, Rufus Wainwright og fleiri. Kjartan Valdemarsson leikur á píanó og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa, en Árni Heimir Ingólfsson segir hinsegin sögur af tónskáldunum og sköpunarverkum þeirra.

Kristjana Stefánsdóttir hefur í rúman áratug verið okkar fremsta söngkona í íslenskri djasstónlist. Að loknu námi við Söngskólann í Reykjavík nam hún djasssöng við Konunglega tónlistarháskólann í den Haag í Hollandi og lauk þar prófi með láði vorið 2000. Hún hefur sent frá sér fjölmargar geislaplötur sem notið hafa mikilla vinsælda og er þar skemmst að minnast Better Days Blues árið 2008. Krstjana hefur hlotið margvíslega viðurkenningu fyrir list sína og nokkrum sinnum verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir plötur sínar. Þá syngur hún reglulega með Stórsveit Reykjavíkur og hefur m.a. unnið með stjórnendum á borð við Daniel Nolgard og Ole Kock Hansen. Hún  hefur haldið tónleika víða um lönd, m.a. á meginlandi Evrópu, í Japan og Bandaríkjunum. Kristjana hefur löngum farið ótroðnar slóðir í listsköpun sinni, hún er ekki aðeins söngkona og söngkennari, heldur hefur hún einnig starfað sem tónlistarstjóri í leikhúsi, tónskáld og ljáð trúðnum Bellu líf í Borgarleikhúsinu í Reykjavík.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
10.08.12 - Föstudagur 20:30 Á hinsegin nótum - Lögin úr leikhúsinu - Norðurljós Harpa 2.000 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash