Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Lúðrasveit Reykjavíkur fagnar 90 ára afmæli sínu um þessar mundir.
Blásið verður til tónleika 17. maí af þessu stóra tilefni.

Efnisskráin er samansett af tónsmíðum eftir helstu tónsmiði Íslands sem samið hafa tónverk fyrir lúðrasveit og má þar nefna Áka Ásgeirsson, Árna Björnsson, Báru Sigurjónsdóttur, Helga Helgason, Karl O. Runólfsson, Lárus H. Grímsson, Oddgeir Kristjánsson og Páll Pampichler Pálsson

Elsta lagið sem flutt verður er samið árið 1885 af Helga Helgasyni.

Gaman er að nefna eina sögu af Helga, sem kallaður er faðir íslensku lúðrasveitanna. Dóttir Helga segir söguna af tilurð frægasta lúðrasveitarlags íslenskra lúðrasveita, Öxar við Ána. Öxar við Ána varð til niðri á Austurvelli. Þar var dóttirin ásamt föður sínum og hlustað á erlenda lúðrasveit spila erlenda tónlist. Þegar útlendingarnir höfðu lokið leik sínum, tók Helgi í hönd dóttur sinnar og sagði:,,Nú forum við heim og semjum íslenskan mars”.

Góða skemmtun.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
17.05.12 - Fimmtudagur 20:00 Lúðrasveit Reykjavíkur 90 ára - Kaldalón Harpa 2.000 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash