Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Paul McCartney er einn helzti listamaður samtímans.  Paul átti stóran þátt í því að gera poptónlist að listgrein fyrir hálfri öld og er enn skapandi sem höfundur og flytjandi. Paul McCartney skapaði ímynd poplistamannsins, frábær söngvari, frumlegur höfundur, snjall útsetjari og fjölhæfur hljóðfæraleikari.

Paul McCartney verður sjötugur 18. Júní nk og af því tilefni munu íslenskir tónlistarmenn heiðra Paul með tónleikum í Eldborgarsal Hörpu þann sama dag. Þeir vilja þakka honum innblásturinn, brautryðjendastarfið með The Beatles og fyrir alla músíkina sem hann hefur gefið okkur.

Egill Ólafsson, Gunnar Þórðarson, Andrea Gylfadóttir, Eyþór Ingi, Jakob Frímann Magnússon, Pálmi Sigurhjartarson, Björgvin Gíslason, Tómas M. Tómasson, Eðvarð Lárusson, Ásgeir Óskarsson, Gísli Helgason, Ólafur Þórarinsson, Baddi Jeff Who, Magnús R. Einarsson, Þórður Árnason, Eyjólfur Kristjánsson.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
18.06.12 - Mánudagur 20:00 Paul McCartney 70 ára afmælistónleikar - Eldborg Harpa 0 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash