- Þú ert hér »
ABBA - 40 ára

ABBA 40 ára
Það þarf sennilega ekki að kynna ABBA fyrir fólki en þau Agnetha Fältskog, Benny Andersson, Björn Ulvaeus og Anni-Frid Lyngstad tóku upp lagið People need love í júní árið 1972 með því varð ABBA til.
ABBA var fyrsta popp hljómsveitin sem ekki var enskumælandi en náði þó miklum vinsældum í enskumælandi löndum svo sem Englandi, Írlandi, Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Suður Afríku og Fillipseyjum svo eitthvað sé nefnt.
Þrátt fyrir að hafa aðeins starfað í 10 ár náði tónlist ABBA gríðarlegum vinsældum um allann heim, en hljómsveitin hætti að starfa í byrjun árs 1983.
ABBA hefur selt fleiri en 370 milljón plötur frá upphafi og seljast plöturnar enn í milljónum eintaka á hverju ári.
Í tilefni 40 ára afmælis ABBA verða tónleikar þeim til heiðurs í Eldborgarsal Hörpunnar þann 25. ágúst næst komandi.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 25.08.12 - Laugardagur | 20:00 | ABBA - 40 ára - | Eldborg | Harpa | 9.990 kr. / 7.990 kr. / 6.990 kr. / 4.990 kr. |
| 25.08.12 - Laugardagur | 23:00 | ABBA - 40 ára - Aukatónleikar | Eldborg | Harpa | 9.990 kr. / 7.990 kr. / 6.990 kr. / 4.990 kr. |

