Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson
Opnunartónleikar Listahátíðar

Skúli Sverrisson og Ólöf Arnalds hófu samstarf sitt árið 2005 þegar Skúli fékk Ólöfu til liðs við sig við gerð Seríu I. Við það varð til náið samstarf sem hefur leitt af sér fjórar hljómplötur í heild, þ.e. Seríu I og II og sólóplötur Ólafar Við og við og Innundir skinni. Öll þessi verk hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda og fengið ýmsar viðurkenningar, bæði hér heima sem ytra. Í fyrsta sinn halda Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson saman stóra tónleika hér á landi en þau hafa spilað saman á fjölmörgum tónleikum erlendis undanfarin ár. Ólöf og Skúli líta á þennan viðburð sem einstakt tækifæri til fagna farsælu og áframhaldandi listrænu samstarfi sínu. Dagskráin mun því innihalda valin lög úr verkum beggja. Með Ólöfu og Skúla kemur fram frábær hópur listamanna sem hafa komið við sögu í þessum verkum. Hann skipa Eyvind Kang, Amedeo Pace, Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir, Kjartan Sveinsson, María Huld Markan og Róbert Reynisson.  Einnig koma fram Daníel Bjarnason, Matthías Hemstock og Ragnar Kjartansson.

Ólöf Arnalds er ein skærasta stjarna íslenskrar tónlistar um þessar mundir og hefur verið á tónleikaferðalagi um Bandaríkin, Ástralíu og víðar undanfarna mánuði með plötu sína Innundir skinni. Það er orðið langt síðan hún hefur haldið tónleika hér á landi og margir án efa spenntir að heyra í henni. Ólöf Arnalds fékk í síðastliðinni viku íslensku tónlistarverðlaunin sem tónhöfundur ársins, en Innundir skinni var einnig tilnefnt til Norrænu Tónlistarverðlaunanna.

Það ríkir ekki síður spenna yfir komu Skúla Sverrissonar til landsins enda hefur hann lítið sem ekkert spilað á Íslandi, en átt blómlegan feril í Bandaríkjunum og spilað með heimsþekktum listamönnum á borð við Laurie Anderson, Blonde Redhead, Ryuichi Sakamoto og fleirum. Hann hefur þó verið iðinn við að vinna með íslenskum listamönnum og  gefið út plötur sem hlotið hafa einróma lof gagnrýnenda. Sería II kom út í fyrra og hlaut tilnefningu til íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar, en fyrsta Seríuplata hans, Sería I  hlaut einmitt þau verðlaun árið 2006.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
20.05.11 - Föstudagur 21:00 Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson - Norðurljós Harpa 2.900 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class