- Þú ert hér »
Álfar og Riddarar

Sinfóníuhljómsveit Íslands
Nýtt og spennandi tónlistarævintýri eftir færeyska þríeykið Rakel Helmsdal rithöfund, Kára Bæk tónskáld og myndskreytinn Janus á Húsagarði. Einstaklega kraftmikið og heillandi færeyskt ævintýri sem byggir á minninu um riddarann Ólaf Liljurós og hetjudáðum hans. Seiðandi danstónlist, kraftmikið slagverk og riddaraleg lúðraköll einkenna þetta framúrskarandi barnaverk. Myndskreytingum Janusar er varpað upp á stórt tjald meðan á flutningi ævintýrsins stendur. Með því móti eru allir tilbúnir að taka þátt í ævintýrinu og fljúga af stað með litla bróður að „veiða vind“ alveg eins og Ólafur Liljurós gerði.
Stjórnandi
Bernharður Wilkinson
Sögumaður
Benedikt Erlingsson
Efnisskrá
Jón Leifs
Íslensk rímnadanslög
Kári Bæk
Veiða vind
Atli K. Petursen
Ólavur riddararós
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 11.05.13 - Laugardagur | 14:00 | Álfar og Riddarar - Litli tónsprotinn 2012-2013 | Eldborg | Harpa | 2.200 kr. / 1.800 kr. / 1.600 kr. |


