- Þú ert hér »
Tord Gustavsen Quartet

Með fyrstu tríóplötu sinni á ECM – Changing Places (2003), þótti Tord þegar kominn að kjarna málsins í jazztónlist. Gangrýnendur kepptust við að koma orðum að því hvernig tónlist hans er blíðleg og kraftmikil í senn. Með tveimur tríóplötum til viðbótar (The Ground 2005 og Being There 2007) hefur þessi snjalli tónlistarmaður haldið áfram að slípa tónlistarlega færni sína og hugmyndaauðgi, en hann er líka fræðimaður á sviði tónlistarfræðinnar og fjallar meðal annars um hvernig tónlistarmaðurin kemur heim og saman ákafa augnabliksins annarsvegar og margbreytileika tónlistar sem er samin á ákveðinni tímalínu.
Meðleikarar Tords Gustavsens á Jazzhátíð Reykjavíkur 21. ágúst verða trommuleikarinn Jarle Vespestad -sem hefur ma gert garðinn frægan með hinni stórskemmtilegu hljómsveit Farmers Market, bassaleikarinn Mats Eilertsen – sem um þessar mundir er einn eftirsóttasti kontrabassaleikari Evrópu og saxófónleikarinn Tore Brunborg – sem hefur verið lykilmaður í spennandi Evrópujazzverkefnum síðan á níunda áratug síðustu aldar.
Þetta er einmitt sami mannskapur og leikur á síðustu plötu Tords Gustavsen hjá ECM, sú kom út fyrr á þessu ári og heitir “The Well”.
Norska sendiráðið í Reykjavík veitir ómetanlega aðstoð við þennan viðburð.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 21.08.12 - Þriðjudagur | 20:00 | Tord Gustavsen Quartet - Jazzhátíð Reykjavíkur | Norðurljós | Harpa | 5.900 kr. |


