- Þú ert hér »
Theo Bleckmann, Hilmar Jensson ofl.

Söngvarinn Theo Bleckmann var gestur Jazzhátíðar Reykjavíkur 2008 og hélt þá ógleymanlega sólótónleika í Fríkrkjunni. Síðan þá hefur hver frábær platan komið á eftir annari og nú síðast plata með tónlist Kate Bush.
Á tónleikum Jazzhátíðar þetta árið munu þeir leiða saman hesta sína Theo og Hilmar Jensson gítarleikari, en þeir hafa unnið saman að nýrri tónlist undanfarna mánuði, sem stendur til að hljóðrita til útgáfu á næstu mánuðum.
Það er ekki síður Hilmar sem sýnir á sér nýja hlið en það hefur ekki farið mikið fyrir sunginni tónlist á verkaskrá hans og óhætt að fullyrða að spennandi verður að kynnast þessum nýja vinkli á tónlistarsköpun Hilmars og Theo Bleckman. Meðal gesta á tónleikunum verður söngkonan Sigríður Thorlacius.
Tónleikarnir verða í Kaldalónssal Hörpu 24. ágúst.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 24.08.12 - Föstudagur | 20:00 | Theo Bleckmann, Hilmar Jensson ofl. - Jazzhátíð Reykjavíkur | Kaldalón | Harpa | 3.500 kr. |


