- Þú ert hér »
Stelpurokk Andrea Gylfadóttir 50 ára

Andrea Gylfadóttir fagnar fimmtugsafmæli sínu með stórtónleikum í Eldborg laugardagskvöldið 15. september nk. Andreu þarf vart að kynna fyrir nokkrum manni enda hefur hún verið ein aðsópsmesta söngkona Íslands undanfarin 25 ár, allt frá því hún stökk fram á sjónarsviðið með hljómsveitinni Grafík árið 1987. Í kjölfarið stofnaði hún hljómsveitina Todmobile ásamt þeim Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni og Eyþóri Arnalds en Todmobile starfar enn og gaf síðast út sína sjöundu breiðskífu á sl. ári. Andrea hefur þess utan lengi sungið blús og djass, hvort sem er með eigin Blúsmönnum eða öðrum sveitum. Borgardætur hafa notið krafta Andreu allt frá stofnun og hún hefur að auki ljáð ýsmum persónum söngleikjanna rödd sína í gegnum tíðina, til að mynda Geddu gulrót í Ávaxtakörfunni, Evu Peron í Evítu og mannætuplöntunni í Litlu hryllingsbúðinni. Andrea er einnig afkastamikill textahöfundur og hefur tvívegis hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin sem Textahöfundur ársins. Í febrúar sl. á fimmtugsafmælisárinu kom svo loks að því að Andrea var kjörin Söngkona ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum eftir að hafa verið tilnefnd óteljandi oft.
Á tónleikunum í Eldborg mun Andrea færa áheyrendum sýnishorn af öllum ferlinum því auk Andreu munu koma fram hljómsveitirnar Todmobile, Grafík, Tweety, Borgardætur, Blúsmenn Andreu og Bíóbandið. Kynnir og gestgjafi verður Pálmi Sigurhjartarson.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 15.09.12 - Laugardagur | 20:00 | Stelpurokk Andrea Gylfadóttir 50 ára - | Eldborg | Harpa | 6.990 kr. / 5.990 kr. / 4.990 kr. / 3.990 kr. |


