- Þú ert hér »
Elvis Costello

Elvis Costello
Einstök Kvöldstund með Costello í Hörpu
Grammy- verðlaunahafinn og tónlistarkamelljónið Elvis Costello heldur tónleika í tónlistarhúsi Reykjavíkur Hörpu 21. nóvember næstkomandi. Costello á að baki einhvern litríkasta tónlistarferil sem sögur fara af. Hann ögrar sér og aðdáendum sínum á hverju ári og spannar ferill hans allt frá ný pönki yfir í létt sveiflu og samstarfi við meistara Tony Bennett
Koma Costello til landsins er mikill fengur fyrir tónilstarunnendur. Costello er einn á sviðinu á þessum tónleikum og á heimasíðunni hans elviscostello.is er hægt að leggja inn óskalög fyrir tónleikanna sem er spennandi nýjung. Lög meistarans sem eru mörg orðin algjörlega ódauðleg og nægir þar að nefna She úr Notting Hill myndinni, Olivers Army, Alison, Veronica og fleiri og fleiri. Það er því ljóst að kvöldstund með Elvis Costello í Hörpu mun seint líða úr minni tónlistarunnenda.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Tónleikar | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 10.06.12 - Sunnudagur | 20:00 | Elvis Costello - | Eldborg | Harpa | 0 kr. |


