Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Hausttónleikar 2010 - Fertugsafmæli

Í haustbyrjun hefst hlýindaskeið að venju þegar Hörður Torfa stígur ásamt vinum á svið þann  9. september í stóra sal Borgarleikhússins og flytur söngva sína og sögur.

Fyrri hluti tónleikanna  í ár eru tileinkaðir fyrstu plötunni. Sú plata var einmitt gerð fyrir 40 árum og á stóran sess í hugum landans sem sést best á því að þegar fyrstu tónar laganna Ég leitaði blárra blóma, Þú ert sjálfur Guðjón og Kveðið eftir vin minn og öll hin hljóma tekur salurinn undir. Hörður mun  flytja plötuna frá byrjun til enda ásamt hljómsveit.

Eftir hlé ætlar Hörður að flakka fram og til baka í tíma ... enn leitandi blárra blóma og hugsandi upphátt í bundnu sem óbundnu máli. Af mörgu er að taka af löngum ferli því plötur Harðar eru orðnar 22 að tölu.
Árið 2010 er ár afmælanna því heimasíða söngvaskáldsins er nú 15 ára. Þar má kynna sér feril Harðar, líta yfir plötusafnið, kaupa tónlist hans, lesa ljóð eða jafnvel senda Herði línu.

Dagsetningar

Dags. Kl. Tónleikar Staðsetning Umsjón Verð
09.09.10 - Fimmtudagur 19:30 Hausttónleikar - Hörður Torfa 2011 - Hausttónleikar Harðar Torfa 2010 Stóra Sviðið B Borgarleikhúsið 3.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Macland.is
Brim